Vöðluviðgerðir

Vöðluviðgerðir Í Ellingsen

vodluvidgerdirNú er hægt að koma með vöðlurnar í viðgerð hjá Ellingsen. Það er hann Jói byssusmiður sem sér um viðgerðinar en hann hefur mikla reynslu af viðgerðum á vöðlum eða allt frá því hann vann við góðan orðstír á Skóstofunni við Dunhaga. Jóhann fór á námskeið hjá Core-Tex í Svíþjóð og lærði þar viðgerðir á Core-Tex efni en Ellingsen er með sérstaka græju fyrir þær viðgerðir. Einungis er tekið við vöðlum til viðgerðar vegna leka en þar er bæði átt við öndunar og neoprine vöðlur. Þær vöðlur sem koma inn fyrir hádegi á miðvikudegi ættu að vera tilbúnar á föstudegi.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica