Þjónustuverkstæði
Þjónustuverkstæði
Þjónustuverkstæði Ellingsen sér um viðgerðir og ástands- og vetrarskoðanir á ferðatækjum, vélsleðum, fjórhjólum, sæþotum og utanborðsvélum. Vorið 2009 tók Ellingsen við umboði Can-Am fjórhjóla, Ski-doo vélsleða og Sea-doo sæþota. Eftir að þessi umboð fluttust til Ellingsen var þjónustuverkstæðið stækkað til muna. Halldór Jóhannesson var ráðinn þjónustustjóri þess, Arnar Már Bergmann í varahlutaþjónustu og Ófeigur Geirmundsson og Þorlákur Guðbrandsson í viðgerðarþjónustu.
Meðal þeirra þjónustu sem boðið er uppá fyrir ferðatæki er uppsetning á sólarrafhlöðum, ísskápum, aukaljósum, hitamiðstöðvum, yfirferð á ljósabúnaði, ísetningu rafgeyma og hleðsla í bíla og vagna.Einnig er boðið uppá breytingar á ferðatækjum en sífellt færist í vöxt að viðskiptavinir óski eftir breytingum á vögnum t.d. upphækkanir svo auðveldara sé að draga tækin á fjallvegum.
Þjónustuverkstæðið er staðsett við Fiskislóð 1.
Opnunartími þjónustuverkstæðis er alla virka daga frá 08:00 - 18:00.
Opnunartími varahlutaþjónustu er alla virka daga frá 10:00 - 18:00.
Tímapantanir fyrir þjónustuverkstæðið fara fram í síma 580 8510, eða á netfanginu halldor@ellingsen.is. Fyrirspurnum vegna varahluta er svarað í síma 580 8509 eða á netfanginu arnarm@ellingsen.is.
