Fréttir

Stangveiðin byrjar vel í veðurblíðunni.

20.5.2009

Nú er allt að fyllast af vörum hjá okkur í stangveiðideildinni. Í síðustu viku fengum við mikið úrval af Loop vörum í hús og í næstu viku fáum við nýjar vörur frá ABU – Shimano o.fl. Það er líka alveg ljóst að veðrið síðustu daga hefur vakið fólk til lífsins og höfum við varla haft undan suma daga við að þjónusta fólk við kaup á veiðigræjum.

Ótrúlegt en satt þá erum við að fá aukasendingu frá Loop með flugi í næstu viku sökum gríðarlegrar eftirspurnar síðustu daga. Flugubarinn er að fyllast af flugum eins og vera ber og ýmislegt nýtt að sjá þar. Silungsveiðin hefur farið vel af stað og laxveiðin að byrja eftir sirka tvær vikur, við erum klárir með vörurnar og nú er bara að vona að laxinn verði kominn í árnar þegar fyrsta fólkið mætir á bakkann í júní.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica