Fréttir

Kokkurinn leggur í langferð

23.10.2009

eirikur_1Eiríkur Finnsson betur þekktur sem kokteilsósan renndi við hjá okkur á þjónustuverkstæðinu í morgun. Eiríkur er ásamt 15 manna hópi að leggja upp í langferð en hópurinn mun keyra á fjórhjólum yfir fjallabak nú um helgina. Það er óhætt að segja að fáir hafi eins mikla reynslu af fjórhjólaferðum á Íslandi en Eiríkur sem á að að baki eitthvað í kringum 40.000 km frá því að hægt var að götuskrá Can-Am fjórhjólin árið 2006.

Eiríkur verður einnig að teljast frumkvöðull í breytingum á fjórhjólum en eins og sjá má á myndunum er fjórhjól Eiríks vel útbúið og breytt. Á fjórhjólið hefur verið sett power stýri, kúplingskitt, 27“ Bighorn dekk og breiðari felgur allan hringinn, snorkel, talstöð, GPS, auka bensíntankar og margt fleira. Farangurinn dregur hann svo á eftir sér á Daxara 107 kerru sem seldar eru í Ellingsen.

Fyrir þá sem hafa hug á að breyta fjórhjóli sínu eða verða sér úti um aukahluti er tilvalið að kynna sér hvað er í boði á þjónustuverkstæði Ellingsen. Einnig má benda þeim á sem hafa beðið með óþreyju eftir Bighorn fjórhjóladekkjunum að þau eru nú loksins fáanleg hjá okkur. 

 

                 eirikur_2       eirikur_4






Þetta vefsvæði byggir á Eplica