Ellingsen fær umboð fyrir Evinrude og Johnson
Ellingsen hefur fengið umboð fyrir Evinrude og Johnson utanborðsmótora sem BRP hefur framleitt undanfarin ár. Þá má því segja að BRP hringnum sé lokað en Ellingsen hefur nú fengið umboð fyrir öll helstu vörumerki þessa virta framleiðanda.
E-Tec tæknin sem utanborðsmótorar BRP eru byggðir á er margrómuð fyrir áreiðanleika og sparneytni ásamt því að þessi byltingarkennda tækni þykir einstaklega hljóðlát. T.d eru E-tec utanborðsmótorarnir þeir fyrstu frá 1976 sem eru leyfðir til notkunar á Lake Bodensee í Þýskalandi sem er eitt af viðkvæmustu og mest vernduðu vistkerfum í heimi. Evinrude E-tec eru fáanlegir frá 25-300 hestöflum.
Ellingsen mun þjónusta eigendur Evinrude og Johnson utanborðsmótora ásamt öðrum vörum frá BRP. Ófeigur Geirmundson einn helsti sérfræðingur landsins í viðhaldi og þjónustu utanborðsmótora var ráðinn til starfa á þjónustuverkstæði Ellingsen í sumar ásamt Þorláki Guðbrandssyni sem einnig hefur mikla reynslu í viðhaldi og viðgerðum á utanborðsmótorum.
