Verkstæði Ellingsen flutt að Vatnagörðum 12
Verkstæði Ellingsen hefur verið flutt að Vatnagörðum 12. Það var ljóst þegar Ellingsen tók við fleiri vörumerkjum BRP og Camp let að verkstæðið þyrfti stærra húsnæði en það sem það hafði að Fiskislóð 1. Það var því tekin ákvörðun um að færa það að Vatnagörðum 12 í rúmgott húsnæði sem ætti að geta hýst okkur um ókomna tíð. Síminn á verkstæðinu er eftir sem áður 580 8510 en einnig er hægt að panta tíma á netfanginu halldor@ellingsen.is.
