Fréttir

Leiktækjahátíð í Ellingsen laugardaginn 9. janúar

8.1.2010

Ellingsen hefur tekið við vörumerkjum BRP, Ski-doo og Can-am til viðbótar við Lynx sem það hefur haft um nokkura ára skeið. Af því tilefni verður blásið til leiktækjahátíðar laugardaginn 9. janúar. Hápunktur dagsins, sem við hvetjum fólk til að missa ekki af, verður kl.14:00 þegar Íslandsmeistarinn í snókrossi, sjá jonni.is, reynir við 50 metra stökk á vélsleða yfir flóðgarða og útí sjó. Fyrir börnin verður ýmiss konar afþreying m.a. kassaklifur þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica