Fréttir

Magnað stökk hjá Jonna ofurhuga

11.1.2010

jonni_stokkÞað var engin svikinn af áhættuatriðinu sem framkvæmt var í Ellingsen á laugardaginn en þar stökk tvöfaldur Íslandsmeistari í snjókrossi Jonni.is á vélsleða í sjóinn fyrir framan stóran hóp áhorfenda. Að sögn Jonna var stökkið fullkomið þó honum hafi fundist lendingin harkaleg en þetta var í fysta skipti sem Jonni framkvæmir stökk af þessu tagi á vélsleða. Eftir stökkið komu svo áhorfendur við í Ellingsen þar sem heitt kaffi beið þeirra og fjöldin allur af vélsleðum og fjórhjólum var til sýnis og sölu. Börnin skemmtu sér einnig vel en Björgunarsveitin Ársæll bauð þeim uppá kassaklifur. 

Hér má sjá myndband af stökkinu.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica