Fréttir

Hleðslunámskeið Skotfélags Reykjavíkur í samvinnu við Ellingsen

5.2.2010

skothledslaHleðslunámskeið verða haldin í félagsheimili SR á Álftanesi laugardagana 13., 20., og 27. febrúar 2010, Kl.11:00 - 15:00. Kennari er Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður. Námskeiðin gefa fyrir þá sem hafa B- réttindi, hleðsluréttindi E. Námskeiðið er viðurkennt af Ríkislögreglustjóra. Þau eru skuldlausum félögum SR að kostnaðarlaus og þeim sem hafa keypt heil sett til endurhleðslu hjá versluninni Ellingsen. Ennfremur er frítt fyrir þá sem ætla sér að panta hleðslusett hjá Ellingsen. Þáttakendur fá 15% afslátt af hleðsluvörum strax eftir námskeið og 15% afslátt af pöntuðum settum.

Hámarksfjöldi þátttakenda er 10 manns.

Skráning á námskeiðið fer fram á sr@sr.is eða johannv@ellingsen.is.



Til baka, Senda síðu, Prenta síðu

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.