Fréttir
Kynning á ferðatækjum árgerð 2010
Þessa dagana kynnum við 2010 árgerðir af Aliner a-hýsum, og Fleetwood fellihýsum. Eldri árgerðir fyrir utan tvær af þeim tækjum sem við kynnum hafa verið til sölu í Ellingsen undanfarin ár og góð reynsla er af þeim við íslenskar aðstæður. Þær tvær týpur sem við kynnum nú í fyrsta sinn eru Fleetwood Sedona fellihýsi og Aliner Classic a-hýsi. Þetta er flott viðbót í flóru ferðatækja á Íslandi og við eigum von á jákvæðum viðbrögðum fólks við þeim. Við hlökkum til að sjá ykkur og það þarf vart að taka fram að verslunin er stútfull af ferðavörum og aukahlutum fyrir ferðatækið. Smellið hér til að sjá nánari upplýsingar um tækin.
