Saga og upplýsingar

Saga Ellingsen

Saga og upplýsingar

ellingsen2Árið 1903 flutti Norðmaðurinn og skipasmiðurinn Othar Ellingsen til Íslands til að taka við starfi framkvæmdastjóra Slippfélagsins í Reykjavík, sem þá var nýstofnað. Á næstu árum, við þröng og erfið skilyrði, tókst honum að byggja upp rekstur og starfsemi fyrirtækisins. Í starfi sínu þurfti Othar að flytja ýmis tæki og tól til landsins sem tengdust starfseminni, en svo fór að árið 1916 stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki og var meginhlutverk þess að sérhæfa sig í sölu á veiðarfærum og öðru því er tengdist útgerð. Fyrirtækið varð brátt vel metið og eignaðist stóran og tryggan hóp viðskiptavina um land allt, og víða erlendis. Mátti það að mestu þakka einstökum mannkostum stofnandans, en hann þótti ákaflega heiðarlegur og traustur í viðskiptum og ekki síst duglegur og eljusamur. Árið 1934 lét Othar af starfi og við tók sonur hans og alnafni, Othar Ellingsen. Hann stýrði fyrirtækinu í 58 ár, eða til ársins 1992, en þá tók sonur hans, Óttar Ellingsen, við.

Í fyrstu var fyrirtækið til húsa í Kolasundi en flutti fljótlega í Hafnarstræti 15. Þar voru höfuðstöðvarnar allt þar til flutt var í húsnæði að Grandagarði 2, þar sem Ellingsen, verslun athafnamannsins, var til húsa fram til loka maí 2006. Reksturinn gekk vel lengi framan af en þrátt fyrir mikla viðskiptavild og trausta ímynd var síðasti áratugur tuttugustu aldarinnar fyrirtækinu erfiður. Til að freista þess að bæta reksturinn var meðal annars ráðist í að kaupa Víraþjónustu Ingvars og Ara árið 1992 og bæta þannig þjónustu og auka möguleika til stækkunar.

ellingsen3Þáttaskil urðu í restrinum árið 1999 er Ellingsen-ættin seldi allt hlutafé til Olíuverzlunar Íslands. OLÍS-búðin við Ármúla var þá sameinuð verslun Ellingsen en að öðru leyti starfaði fyrirtækið í óbreyttri mynd. Starfsemin var endurskipulögð og kapp lagt á að endurheimta hina fornu frægð verslunar Ellingsen. Í því augnamiði voru Ellingsen og Sandfell hf., sameinuð í eitt fyrirtæki í desember árið 2000 og á vormánuðum 2001 keypti Ellingsen hluta af starfsemi Geira hf. Sandfell var stofnað árið 1964 og starfaði á sama markaði og Ellingsen; seldi útgerðar- og rekstarvörur fyrir sjávarútveginn. Frá Geira hf. komu aðallega björgunar- og neyðarvörur en einnig Zodiac-slöngubátar ásamt öðru.

Í lok ársins 2001 var ákveðið að sameina rekstur Ellingsen móðurfyrirtækinu, Olíuverzlun Íslands hf. Á sama tíma var farið í endurskipulagningu á þjónustu við sjávarútveginn með það að markmiði að veita heildarþjónustu til útgerðarinnar og var því ákveðið að skilja að útgerðarþjónustu og verslunina og færa heildsölustarfsemi á útgerðarvörum yfir á sölusvið Olís.

Árið 2005 keypti Olíuverzlun Íslands rekstur Evró sem í mörg ár hafði verið leiðandi í sölu ferðavagna og -tækja á Íslandi og nú í ár bættust í hópinn Sjóbúðin á Akureyri og J. Vilhjálmsson, sem er betur þekkt undir nafninu Jói byssusmiður. Þessi fyrirtæki hafa nú öll verið sameinuð undir nafni Ellingsen sem verður með megináherslu á ferða- og útivistarvörur, útivistarfatnað, ferðavagna og -tæki, sportveiðivörur, gasvörur og aðrar vörur fyrir heimili og sumarbústaði.

Í júní árið 2006 flutti Ellingsen í nýtt og stórglæsilegt framtíðarhúsnæði að Fiskislóð 1 þar sem kapp verður lagt á að bjóða upp á enn betri þjónustu en nokkru sinni fyrr.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica