Hvernig versla ég hér
Karfa
Kaupandi setur vöru í körfu með því að smella á hnappinn, Setja í körfu. Hann getur svo haldið áfram að bæta við vörum í körfu eða farið beint í kaupferlið. Hægt er að fara í kaupferlið strax eftir að vara hefur verið valin í körfu eða seinna eftir hentugleika með því að ýta á hnappinn „Karfa“ ofarlega á hægri hlið vefsíðunnar. Vörur geymast í körfunni jafnvel þó að kaupandi geri bið á kaupum og jafnvel yfirgefi vefsíðuna og versli seinna.
Nýskráning/Innskráning
Þegar kaupandi verslar í fyrsta skipti á vefsíðu Ellingsen þarf hann að skrá upplýsingar sínar. Þessar upplýsingar nýtast svo seinna þegar kaupandi verslar aftur í vefversluninni. Að sjálfsögðu er auðvelt að breyta þessum upplýsingum ef kaupandi kýs að gera það. Þegar kaupandi hefur skráð upplýsingar sínar í vefverslun geymast þær þar og hann þarf því eingöngu að skrá sig inn í vefverslun með notendanafni og lykilorði næst þegar versla hjá okkur.
Staðfesta pöntun
Þegar kaupandi hefur ákveður að fara í kaupferlið skráir hann sig inn í verslun með notendanafni og lykilorði. Á skjánum kemur fram yfirlit yfir vörurnar í körfunni. Hann getur breytt vörukörfu að vild, bætt við eða eytt vörum. Kaupandi getur einnig hætt við pöntun ef honum sýnist svo.
Innsláttur greiðsluupplýsinga
Kaupandi slær inn númer á greiðslukorti. Þessar upplýsingar eru, tegund korts, nafn, kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer á bakhlið greiðslukorts. Kaupandi smellir næst á hnappinn staðfesta og þá fara greiðslupplýsingarnar í gegn. Ef greiðsla er samþykkt fær kaupandi á skjáinn greiðslukvittun sem hann getur prentað út. Hann fær einnig senda greiðslukvittun í tölvupósti.
Sending pantana
Það tekur pöntun um 3 virka daga að komast á leiðarenda.

