Vörur
Coleman Primus F1 Power (30674)
Mjög kraftmikil en létt 4 arma gashella. Brennarinn á hellunni er stór sem gerir það að verkum að hún skilar út miklum krafti og er ekki nema 2.36 mínútur að ná upp suðu á 1 lítra af vatni. Kemur útbúin með Piezo kveikju sem gerir eldspýtur og kveikjara óþarfa. Auðvelt er að brjóta armana saman og setja í poka sem fylgir með vörunni. Gashellan notar Coleman Butane/Propane kúta 100, 250 eða 500. Kútar fylgja ekki. Notist ekki í lokuðu rými.
- Verð: 12.990 kr.
Upplýsingar um vöru
- Suðutími : 2.36 MÍN
- Stærð : 9 X 12 X 7 CM
- Kraftur : 7000 WATT
- Þyngd : 153 GR
