Úrvalskúlur frá Hornady í Ellingsen

ELLINGSEN býður nú upp á fjölbreytt úrval af byssukúlum frá Hornady, sem er einn þekktasti framleiðandi byssukúlna og endurhleðsuvara í Bandaríkjunum. Hornady framleiðir bæði veiðikúlur og kúlur fyrir íþróttaskotfimi og eru Hornady kúlur þekktar fyrir nákvæmni og gæði.

Hornady framleiðir mikið úrval af kúlum. Hjá Ellingsen fást nú Hornady kúlur í hlaupvíddum frá .22 caliber og upp í .458 caliber og af ýmsum gerðum. Við erum stolt af því að geta boðið þessar frábæru kúlur á mjög góðu verði. Hér skal gerð grein fyrir helstu gerðum riffilkúlna og skammbyssukúlna sem Hornady framleiðir og fást hjá okkur.

Riffilkúlur í miklu úrvali

GMX er heitið á nýjustu riffilkúlunni frá Hornady. Þetta er gegnheil veiðikúla úr einsleitu efni, sömu koparblöndu og Hornady hefur notað í kápur riffilkúlna með blýkjarna. Op er í oddi kúlunnar og í það er settur plastoddur sem eykur flughæfni (BC) kúlunnar. Kúlan hefur svipaða lögun og SST og INTERBOND kúlurnar frá Hornady sem tryggir svipaða flugeiginleika. Þeir sem hlaða skotin sín geta því notað sömu uppskriftir fyrir þessar þrjár kúlugerðir með svipuðum árangri. GMX kúlan er gerð hafa mikla gegndrægni og viðhalda um 95% af þyngd sinni eftir að hafa lent í bráð. Kúlan er hönnuð til að skila hámarksvirkni á hraðasviðinu 2.000-3.400 fet á sekúndu eða 610-1.036 m/s.

INTERBOND er vel þekkt veiðikúla frá Hornady. Kjarni og kápa INTERBOND kúlunnar eru fest saman með sérstakri aðferð sem tryggir samloðun kápu og kjarna hvað sem fyrir verður. Kjarninn losnar ekki frá kápunni, svo einfalt er það. INTERBOND kúlan þenst út í um tvöfalt þvermál sitt og heldur um 90% af þyngd sinni við að lenda í bráð. Þetta tryggir hámarks virkni þessarar mögnuðu veiðikúlu. INTERBOND kúlan er með plastodd sem eykur á flughæfni hennar.

SST er hönnuð með hámarksvirkni og mikla flughæfni í huga. SST byggir á þrautreyndri hönnun INTERLOCK kúlunnar en SST er straumlínulagaðri og hefur betri flugeiginleika. Kúlan er með plastoddi og kápan er þannig hönnuð að kúlan á að þenjast hæfilega út og halda þyngd sinni til að fella bráðina hratt og örugglega.

V-MAX er sérhönnuð vargveiðikúla frá Hornady. V-MAX er með plastodd sem tryggir hraða þenslu kúlunnar sem tortímir bráðinni á augabragði. Kápan er úr kopablöndu og hönnuð til að tryggja mikla nákvæmni kúlunnar á löngum færum. V-MAX er hönnuð til að þola vel hraðan snúning í hlaupum nútíma vargveiðiriffla þannig að hún haldi lögun sinni allt í mark.

INTERLOCK er hefðbundin veiðikúla sem lengi hefur borið hróður Hornady víða um heim. INTERLOCK kúlan er með blýodd. Kápan er þannig hönnuð að kúlan þenjist vel út þegar hún lendir í bráð á mjög breiðu hraðasviði. Í kúlunni er heill kjarni og kápan þrykkt utan um hann með einskonar gjörð svo kúlan leysist ekki í sundur. Lögun kúlunnar tryggir hámarks flughæfni kúlu af þessari gerð. Í INTERLOCK línunni eru einnig til heilklæddar (FMJ) riffilkúlur í nokkrum stærðum.

A-MAX Match er heiti kúlu sem ætluð er til skotfimi. A-MAX er hönnuð til að skila hámarknákvæmni. Mikil og löng þróunarvinna liggur að baki þessari mögnuðu markkúlu og má segja að um hálfrar aldar löng þróunarvinna liggi að baki A-MAX kúlunni. Oddurinn er hannaður til að skapa sem minnsta loftmótstöðu og fláinn á afturenda kúlunnar minnkar dragið sem myndast á eftir kúlunni eins mikið og mögulegt er. Lögun A-MAX kúlunnar skilar því mikilli flughæfni og nákvæmni. Láttu það því ekki koma þér á óvart þótt riffillinn þinn skili þrengri “grúppum” með A-MAX en með öðrum riffilkúlum!

DGX/DGS
heita kúlur sem ætlaðar eru til veiða á hættulegum dýrum. DGS kúlan er heil koparklædd stálkúla með kjarna úr hertu blýi sem tryggir mikla gegndrægni í bráðinni. DGX kúlan er einnig mjög sterkbyggð koparklædd stálkúla með hertum blýkjarna, en þessi kúla er hönnuð til að þenjast hæfilega út í bráðinni. Báðar þessar kúlur eru ætlaðar til veiða á stórum og harðskeyttum veiðidýrum.

Skammbyssukúlur frá Hornady

Við fengum einnig HBWC (Hollow Base Wadcutter) kúlur í hlaupvíddum .32 og .38. Skammbyssukúlur úr blýi frá Hornady eru smurðar og kaldmótaðar til að tryggja sem mest jafnvægi og samræmi á milli einstakra kúlna. Framleiðsluferli Hornady tryggir að allur snertiflötur kúlunnar sé smurður til að draga úr því að blý festist í byssuhlaupinu.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica